Hlutun og heiti hlutanna
Nautshúðir eru skornar niður á margan hátt, eftir ætlaðri notkun og verðmæti. Nöfn hinna ýmsu hluta húðarinnar eru ,,þýðingar" sem fest hafa rætur, þó naumast geti þau öll talist góð íslenska.
Bakhúðin er að jafnaði dýrust enda stærsti samfelldi flötur húðarinnar og tiltölulega jafnþykkur. Næst kemur framhlutinn en ódýrast er skinn af bógnum.
Greina má húðir eftir skepnum sem þær koma af í villihúðir og í tamdar húðir. Í nöfnunum felst hvað við er átt. Villihúðir eru af villtum dýrum sem veidd eru til nytja. Á slíkum húðum má auðvitað sjá rispur, ör og jafnvel brennimerki, sem ekki hverfa þó húðin sé fullunnin.
Húðir af tömdum dýrum eru jafnari og sér minna á þeim þó alltaf sjáist á þeim einhver merki. Slík merki eru eðlileg og eru yfirleitt ekki metin sem galli öllu fremur má skoða þau sem tákn um ,,ekta" skinn.
Uppmæling skinna og leðurs
Húðir og leður eru samkvæmt hefð mæld í fermetrum eða sem algengast er, í ferfetum.
1 m2 = 10.777 fet (skv. ítalskri mælingu er 1 m2 = 11.11 ferfet, en flórenskt ferfet er u.þ.b. 30 x 30 sm).
|
Smelltu á myndina og stækkaðu |
1/1 húð 1/2 húð Háls Kviður 1/2 bak Sauðskinn Kálfskinn |
40-60 fft 20-30 fft 10-14 fft 5-10 fft 16-20 fft 6-10 fft 6-15 fft |
|