Aðferðir til að fríska upp á leðurmuni (húsgögn, skó, jakka, töskur eða bílsæti)
Viðhald
Hreinsið með Leather Cleaner og látið þorna í u.þ.b. tvo tíma. Berið á Gold Quality leðurfeiti og látið þorna til næsta dags. Pússið yfir með hreinum mjúkum klút.
Ef hellist niður
Þurrkið upp með rakadrægum klút. Hreinsið blettinn með Leather Cleaner og látið þorna í tvo tíma. Berið Gold Quality leðurfeiti á og látið þorna til næsta dags. Pússið yfir með hreinum mjúkum klút.
Ef notað er leðurbæs (narvsværte)
Hreinsið leðrið vel með Remover. Látið þorna. Berið litinn á með mokkaskinnsbút og vinnið litinn vel niður í leðrið. Þegar leðrið er orðið þurrt er úðað yfir setfleti með Satin Gloss til að koma í veg fyrir að liturinn smiti. Að lokum er farið yfir leðrið með Gold Quality leðurfeiti.
Ef skipta á um lit á húsgögnum, skóm, töskum, jökkum eða bílsætum með þekjulit
Hreinsið fyrst með Remover (bleyta vel) og látið þorna í tvo tíma. Berið þekjandi lit (dækfarve) tvisvar sinnum, látið líða fjóra tíma milli umferða. Við þetta er notaður pensill. Gætið þess að laus hár séu ekki í pensli. Til að forðast það er gott að slípa pensilinn með sandpappír. Eftir 12 tíma er borin á Gold Quality leðurfeiti og hún látin þorna til næsta dags. Þá er pússað yfir með hreinum mjúkum klút. Á þriggja sæta sófa og tvo stóla þarf 1 lítra af Remover, tvö glös af Egal þekjandi lit 250 ml, pensil og sandpappír, 500 ml leðurfeiti og mjúka klúta.
Gott að vita
Leður verður oftast fallegra með aldrinum. Vilji maður tryggja að leðrið endist þarf að gæta þess að húsgögn standi ekki of nálægt miðstöðvarofnum því þá þornar það og gránar. Fjarlægð þarf að vera minnst 30 sm. Verndið leðrið fyrir sólarljósi því það upplitast auðveldlega. Ryksugið án þess að rispa eða þurrkið af með þurrum klút .
Sápuvatn er ekki gott fyrir leðrið. Notið aldrei sulfo, bensín eða önnur sterk efni. Þau valda meiri skaða en þau gera gagn.