Armband úr Tílapíuroði



Armband úr Tílapíuroði

Efni: Eitt Tílapíuroð,bútur af leðri, sylgja og fjórir kóssar, tvinni no.40 eða 50, saumavélarnálar no.9 (jeans) og lím.
Verkfæri sem gott er að eiga: Gatatöng, hnoðverkfæri, kóssaverkfæri .
Byrjið á að teikna upp sniðið á hart spjald. Leggið sniðið á roðið og strikið í kring með fitupenna. Það fer svolítið eftir roðinu hvernig armbandið kemur til með að líta út. Heildarlengd á armbandi er að meðalstærð 26cm.
Þegar búið er að sníða roðið er það lagt á leðurbút og límt niður.
Saumið meðfram brún allan hringinn og klippið frá umframleður.
Gatið fyrir sylgju og festið á með hnoði.
Gatið fyrir kóssum ca.fjögur göt. Setjið kóssa í.
Sniðið  af armbandinu er hægt að fá hjá okkur í búðinni.
Í þetta armband má nota allskonar skinn og roð.

Pappír
Prentvörur
Handverksdeild
Skólapappír - pöntunarlisti
pantanir
vorulisti ledurdeildar
Framúrskarandi