Armbönd úr kanínuskinni



Armbönd í sumarlitum úr kanínuskinni

Efni: Kanínuskinn (eitt dugar í tvö armbönd), bútur af flíselíni, skinnbútur eða roð í fóður, dobble tape, lím , franskur rennilás.
Það borgar sig að teikna upp snið til að byrja með, bæði af kanínuskinninu og því leðri sem notað er til að fóðra með.
Stærð á sniði fyrir kanínuskinnið er 22x8cm en sniðið fyrir fóðurskinnið er 20x6cm.
Leggið sniðið á röngu kanínuskinns og strikið meðfram með fitupenna. Skerið línuna með dúkahníf. Passið að halda skinni aðeins frá borði þegar skorið er til að hárin styttjist ekki. Mælið 1cm niður frá hornum og ristið hornin af.
Brjótið brúnir innávið um 1cm og límið niður. Gott að nota dobbel tape.
Sníðið nú leðrið á sama hátt og strauið fóðurléreft eða flíselín á bakhlið (hafið flíselín heldur minna en leðrið).
Límið fóðurleðrið á bakhlið kanínuskinns. Gott er að leggja stykkið undir farg meðan límið er að þorna.
Staðsetjið franska lásinn og saumið hringinn.
Þegar búið er að sauma plokkið þá hárin undan saumnum svo að hann hverfi.
Ath.: Kanínuskinn eru til í 15 litum.

Pappír
Prentvörur
Handverksdeild
Skólapappír - pöntunarlisti
pantanir
vorulisti ledurdeildar
Framúrskarandi