Lítil taska - mjög auðveld
Efni:
Leðurbútur 17 x 47 sm og tveir bútar 5 x 6 sm sem saumast inn í hlið fyrir reimina.
Strauflíselín það þynnsta af töskuflíselíninu 17 x 47 sm.
Töskufóður 17 x 41 sm.
Segullás 13 mm og reim í tösku um það bil 1,50 sm, lím, tvinni nr.40 og saumavélanál nr.90.
Gott er að búa til snið úr þunnum pappa áður en byrjað er að sníða, uppskrift er með saumfari.
1. Byrjið á að sníða leðrið og hliðarsponda.
2. Sníðið flíselín í sömu stærð og leðrið og strauið á leðrið frá röngu.
3. Leggið tvöfalda hliðarsponda og límið saman (2,5 x 6 sm).
4. Brjótið stykkið saman og staðsetjið hliðarsponda inn á milli, 4 sm frá brún að ofan en passið
að nóg pláss sé fyrir reimina sem nota á.
5. Saumið hliðarsauma.
6. Saumið fóður og stingið inn í tösku, athugið að það er 4 sm lægra en taskan. Límið efri brún fóðurs
við tösku með tvöföldu lími eða öðru lími.
7. Brjótið efri brún tösku inn á við (3 sm).
8. Staðsetjið segullás u.þ.b. 1 sm frá brún.
9. Að lokum má tylla innábroti niður með lími eða saum.
10. Þræðið leðurreim í hliðarsponda og bindið hnút.
Vona að þetta gangi vel. Góða skemmtun.