Marstaska



Hér kemur auðveld taska sem hefur verið vinsæl á námskeiðum hjá okkur.

Efni:
Kálfaskinn, roð til að skreyta með, fóðurléreft, tveir hringir, segullás, franskur rennilás 18 sm og 18 sm rennilás.

Vinnulýsing:
Byrjið á að útbúa snið. Taskan er 52 x 37 sm, tveir spondar 11 x 20 sm, band er 120 x 6 sm.
Leggið sniðin á leðrið (frá réttu) og notið fitupenna þegar sniðið er teiknað á leðrið. Sníðið líka fóðurléreft í sömu stærð og taskan.

Saumur:
Byrjið á að strauja fóðurléreftið á töskustykkið. Staðsetjið roð á mitt stykkið en athugið að efri brún brýst niður um ca. 6 sm.

Saumið töskuna saman frá röngu og síðan botninn. Athugið að saumur er á bakhlið tösku. Saumið nú hornin (ca. 4 sm saumur) og klippið.
Ef vasi á að vera innan á tösku er sniðugt að sauma franskan rennilás innan á töskubrúnina svolítið fyrir neðan staðsetningu segulláss.
Faldið brún að ofan og brjótið niður.

Spondar:
Fóðurléreft sniðið á sponda í sömu breidd og bandið er og straujað á. Brjótið inná ca. 0,7 mm (frábært að nota double tape) og aftur til helminga og saumið við brún. Klippið umframleður við brún. Staðsetjið nú sponda ásamt hringjum á hlið töskunnar og saumið eða hnoðið.

Axlaról:
Saumið axlarólina á sama hátt og spondann. Mátið rétta lengd á ólina og festið við hringana. Brjótið niður efri brún tösku og stingið ef þarf.

Segullás settur á.

Vasi:
Franskur rennilás settur á bakhlið vasa. Skorið úr fyrir rennilás á framstykki vasa ca. 2 sm frá efri brún og lásinn saumaður í.
Leggið vasastykki saman og saumið.

Pappír
Prentvörur
Handverksdeild
Skólapappír - pöntunarlisti
pantanir
vorulisti ledurdeildar
Framúrskarandi