![]()
Efni: Refa eða þvottabjarnarskott, lyklahringur, taumlás og skraut að eigin smekk.
Nota má hringi, keðjur, hnýtta litríka spotta, perlur eða hverskyns skraut.
Aðferð: Gatið skinnið u.þ.b. 1 sm frá brún og festið í lyklahring. Gott er að styrkja brúnina sem götuð er með því að líma leðurbút á flötinn sem gataður er. Síðan krækist taumlás í lyklahringinn. Einnig mætti sauma taumlásinn við refaskinnið. Skreytið frjálslega. Allt er leyfilegt.