
EFNI:
Nautsleður jurtasútað (til í 7 litum), fóður, segullás, 2 stórir kóssar og 2 taumlásar.
HVERNIG SNÍÐA SKAL:
Sníðið leðrið í töskuna 78 x 43 sm
líning 78 x 7 sm
2 ólar í þeirri breidd sem passar í valinn taumlás, lengd 1,2m. Límið ólar saman og stingið brúnir.
SAUMUR:
Saumið töskuna saman frá röngu. Látið nú saum vera fyrir miðju að aftan og saumið botninn. Saumið nú hornin (u.þ.b. 4 sm saumur) og klippið.
Fóður er útbúið t.d. úr gamalli fallegri skyrtu eða hörjakka og fest við líningu. Hafið gat á botni fóðurs svo gott sé að komast að til að festa í segullás.
Þá er að stilla af innra byrðið (þ.e. fóður með leðurkanti) og sauma fast við tösku frá réttu. Passa að stilla saumför saman áður en saumað er. Gott er að nota bréfaklemmur til að halda stykkjunum saman.
Merkið fyrir kóssum og höggvið úr fyrir þeim með höggpípu. Festið kóssa í.
Stingið axlaról allan hringinn og festið í taumlása með hnoðum eða saum.
Segullás settur á.
Lokið botni fóðurs. Vasi framan á tösku er saumaður á áður en taskan er saumuð saman.
Góða skemmtun.