Taska úr roði og lambsskinni





EFNI:
Í framstykkið á þessari tösku fara 6 þorskroð og 1/2 lambsskinn í bakstykkið. 45 sm af strauflíselíni, segullás, tvær beltisólar 1 x 95 sm, litur á ólina og smelluhnoð 9x9 mm. Fóðrið er sett saman úr fallegum efnum úr gömlum flíkum. Þá er hjálplegt að eiga fitupenna, dobbel-tape, tvinna nr. 40 eða 50 og gallabuxnanálar nr. 90.

HVERNING SNÍÐA SKAL:
Byrjið á að teikna sniðið á pappaspjald með saumfari. Raðið roðunum upp á sniðið og tyllið niður með dobbel-tape eða notið leðurtítiprjóna. Saumið roðin saman og snyrtið samkvæmt sniði. Sníðið bakstykki og líningu að ofan úr lambsskinninu. Strauið strauflíselín undir öll fjögur stykkin.

Útbúið nú fóður og saumið við líningu.

SAUMUR:
Leggið fram og bakstykki saman rétt á móti réttu og saumið saman. Saumið fóður og líningu á sama hátt, en skiljið eftir op á botni fóðurs ca. 15 sm. Steypið fóðri yfir leðrið rétta á móti réttu, passið að saumar standist á og saumið við efri brún. Snyrtið saumfar og steypið fóðrinu inn í tösku í gegn um opið á botni fóðurs. Nú getur verið fallegt að stinga efri brún frá réttu með stóru spori.

Setjið segulás ca. 1 sm frá efri brún, fyrir miðju. Staðsetjið ólar og festið með hnoðum. Saumið saman op á botni fóðurs.

Hægt er að panta efni í þessa tösku hjá okkur (allt nema fóður) með dags fyrirvara.

Mögulegt er að setja saman kvöldnámskeið þar sem svona taska væri sniðin og saumuð.

Pappír
Prentvörur
Handverksdeild
Skólapappír - pöntunarlisti
pantanir
vorulisti ledurdeildar
Framúrskarandi