
Hvítlist var nýlega valið í hóp framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri.