MIÐDALSMÓTIÐ: Páll Arnar meistari
![]()
Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna og Hvítlistar fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 6. ágúst.
Þetta var í sextánda sinn sem mótið er haldið í Miðdal.
Keppt var skv. punktakerfi með forgjöf í karla- og kvennaflokki. Einnig var keppt í höggleik án forgjafar um Postillon bikarinn.
Hvítlist var aðalstuðningsaðili mótsins sem og undanfarin ár en Fontana, nýopnað gufubað á Laugarvatni gaf verðlaun og teiggjöf til keppenda.
Fyrstu verðlaun með forgjöf hlaut Páll Arnar Erlingsson með 39 punkta, í öðru sæti varð Rudolf Nielsen með 35 punkta og í þriðja sæti varð Ólafur Bergmann Bjarnason einnig með 35 punkta en Rudolf hlaut fleiri punkta á seinni hring.
Postillon bikarinn, fyrstu verðlaun án forgjafar vann Páll Arnar Erlingsson á 75 höggum, í öðru sæti varð Theodór J. Guðmundsson á 84 höggum og í þriðja sæti varð Erling Þór Jónsson á 86 höggum.
Í kvennaflokki sigraði Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir sigraði með 27 punkta, í öðru sæti varð Hrefna Óskarsdóttir með 15 punkta og í þriðja sæti varð Sigrún Sæmundsdóttir með 12 punkta. Nánar á www.fbm.is